Afkoma fyrstu 9 mánaða 2026
Heimar munu birta uppgjör fyrir tímabilið 1.1. - 30.9.2026, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 5. nóvember 2026.
Af því tilefni munu Heimar bjóða til opins kynningarfundar samdægurs kl. 16:15. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi.
Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Heima kynnir uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu.
Kynningarfundinum verður einnig streymt í spilaranum hér að ofan. Öll eldri kynningargögn má nálgast neðar á þessari síðu.
Netfang fjárfestatengsla: fjarfestatengsl@heimar.is
Netfang regluvörslu: regluvarsla@heimar.is