Páll V. Bjarnason

Framkvæmdastjóri fjárfestinga

Páll er framkvæmdastjóri fjárfestinga. Undir Pál heyra fasteignaþróun, stýring eignasafns og samningsstjórnun, opinberir aðilar, viðhald og framkvæmdir. Páll hefur starfað sem framkvæmdastjóri dótturfélaga Heima frá 2016 og var áður sviðsstjóri Fasteignaumsýslu félagsins.

Páll er varamaður í eftirtöldum dótturfélögum Heima hf.: Heimar atvinnuhúsnæði ehf., Kvikmyndahöllin ehf., Knatthöllin ehf., FM-hús ehf., Hafnarslóð ehf., Hörðuvellir ehf., Reykir fasteignafélag ehf og er meðstjórnandi í Heimar skrifstofusetur ehf.

Páll er byggingaverkfræðingur M.Sc. frá Háskólanum í Reykjavík 2011 og byggingatæknifræðingur frá sama skóla 2009. Páll er einnig menntaður húsasmiður og hefur lokið bæði sveins- og meistaraprófi.