
Í Sunnuhlíð er unnið markvisst að því að efla heilsutengda þjónustu í húsinu, með það að markmiði að skapa glæsilegan og framúrskarandi heilsutengdan þjónustukjarna. Áhersla er lögð á fjölbreytta þjónustu sem stuðlar að vellíðan og bættri heilsu.
Sjúkraþjálfun Akureyrar er öflug heilbrigðisstofnun sem hefur starfað frá 2015 og hefur byggt upp orðspor fyrir faglega og persónulega þjónustu. Markmið þeirra er að veita skjólstæðingum fjölbreytta og einstaklingsmiðaða sjúkraþjálfun, þar sem áhersla er lögð á að bæta lífsgæði, styrk og hreyfigetu hvers og eins. Stofan er vel búin nútímalegum tækjum og tólum sem gera þeim kleift að veita meðferð sem byggir á nýjustu þekkingu og aðferðum.