
Rammasamningurinn nær til sérfræðiráðgjafar á þeim sviðum sem Verkís starfar á. Markmið samningsins er að treysta þjónustu þá sem Verkís innir af hendi fyrir Regin, gera hana markvissari með skýrara samningsformi og ákveðnum boðleiðum jafnframt að tryggja það að Reginn fái góða þjónustu á sanngjörnu verði.
Á myndinni eru Katrín Sverrisdóttir, sviðstjóri rekstrarsviðs Regins, Flosi Sigurðsson og Helgi S. Gunnarsson.