Til leigu
Sjálfbærni
Kjarnasvæði
IS
EN
Þjónustubeiðnir
Mínar síður

Hafðu samband

Til leigu

Vöktun

Til leigu

Til leigu

Vöktun

Sjálfbærni

Til leigu

Vöktun

Stefnur

Grænir leigusamningar

Bæklingar og skýrslur

Umhverfisvottanir fasteigna

Hafðu samband

Kjarnasvæði

Til leigu

Vöktun

Fjárfestar

Til leigu

Vöktun

Fjárhagsupplýsingar

Uppgjör og skýrslur

Ársskýrsla

Fjárfestatengill

Aðrar upplýsingar

Fjárhagsdagatal

Hluthafafundir

Kauphallartilkynningar

Stærstu hluthafar

Stjórnarhættir

Stjórnarhættir og samþykktir

Stjórn og undirnefndir

Stefnur

Starfsreglur

Tilnefningarnefnd

Fjármögnun

Græn fjármögnun

Skuldabréfaútgáfa

Hlutabréfaútgáfa

Hafðu samband

Um okkur

Til leigu

Vöktun

Fyrirtækið

Um Heima

Stjórnskipulag

Dótturfélög

Stjórn

Eignasafn

Vinnustaðurinn

Starfsfólk

Framkvæmdastjórn

Mannauðsstefna

Störf hjá Heimum

Annað

Fréttasafn

Hvernig getum við aðstoðað?

Fyrir fjölmiðla

Heimar - ný ásýnd

Sögur af viðskiptavinum

Orðheimar

Hafðu samband

IS
EN
Hagasmári 1
201 Kópavogur
Kt. 630109-1080
heimar@heimar.isbokhald@heimar.is+354 512 8900
Facebook Logo Streamline Icon: https://streamlinehq.comLinkedin Logo Streamline Icon: https://streamlinehq.comInstagram Logo Streamline Icon: https://streamlinehq.comYoutube Clip Logo Streamline Icon: https://streamlinehq.com

Reginn hf.: Samkomulag um kaup á fasteignafélaginu FM-hús ehf.

18.11.2016
ButtonButtonButton
Þann 17. nóvember 2016 var undirritað samkomulag á milli Regins hf. (Reginn), Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS) og eigenda fasteignafélagsins FM-hús ehf. (hér eftir „FM-hús“ og „félagið“) um kaup Regins og VÍS á 63,0% hlutafjár í FM-húsum. Eignarhlutur Regins í félaginu verður 47,0% og VÍS mun eignast 16,0% Samkomulagið er með fyrirvörum m.a um áreiðanleikakönnun, samþykki Samkeppniseftirlitsins o.fl.

Þann 17. nóvember 2016 var undirritað samkomulag á milli Regins hf. (Reginn), Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS) og eigenda fasteignafélagsins FM-hús ehf. (hér eftir „FM-hús“ og „félagið“) um kaup Regins og VÍS á 63,0% hlutafjár í FM-húsum. Eignarhlutur Regins í félaginu verður 47,0% og VÍS mun eignast 16,0% Samkomulagið er með fyrirvörum m.a um áreiðanleikakönnun, samþykki Samkeppniseftirlitsins o.fl.

Fyrirhuguð kaup á FM-húsum miðast við að heildarvirði (EV) eignasafns félagsins sé 3.750 m.kr. Gert er ráð fyrir að félagið verði nánast skuldlaust við kaupin. Nýir hluthafar í félaginu munu greiða fyrir eignarhluti sína með reiðufé. Arðsemi viðskiptanna (e. yield) er um 7%.

Tilgangur viðskiptanna er að kaupa gott og arðbært eignasafn sem mun að ákveðnum tíma liðnum verða alfarið í eigu Regins. Kaupin eru í samræmi við fjárfestingarstefnu félagsins og þá sýn að fjölga samstarfsverkefnum þar sem einkaaðilar og opinberir aðilar vinna saman að uppbyggingu og rekstri verkefna.

FM-hús er gamalgróið og fjárhagslega sterkt fasteignafélag. Félagið er einkar áhugaverður fjárfestingarkostur m.t.t. leigusamninga, gæða eigna og leigutaka. Fasteignasafnið samanstendur af 5 fasteignum og heildarfermetrafjöldi þeirra er um 10.500 fermetrar. Um er að ræða skólabyggingar að Vesturbrú 7 í Garðabæ, Kríuási 1, Kríuási 2 og Tjarnabraut 30 í Hafnarfirði auk skrifstofu- og atvinnuhúsnæðis að Bæjarhrauni 8 í Hafnarfirði. Útleiguhlutfall fasteignanna er 100%. Leigutakar eru 9 og standa opinberir aðilar, Hafnarfjarðarbær og Garðabær á bak við 90% af leigutekjum fasteignasafnsins og er meðaltími leigusamninga um 10 ár. Í hluta eignanna sinnir leigusali stoðþjónustu sem veitt er leigutaka s.s. ræstingu og þrif á húsnæði, öryggisgæslu, umsjón húsnæðis, lóðar o.fl.

Með fjárfestingu þessari skapast tækifæri til að nýta styrk og getu félagsins til frekari vaxtar. Núverandi og væntanlegir hluthafar FM-húsa telja að eignasamsetning, fjárhagslegur styrkur og fjárhagsskipan félagsins henti vel til frekari fjárfestinga og uppbyggingar á kjarnasviði félagsins. Fyrirhugað er að ráðast strax í frekari fjárfestingar gangi kaupin eftir. Áætlað er að heildarvirði (EV) eignasafns félagsins geti orðið allt að 12 - 15 ma.kr. í lok fjárfestingatímabilsins.

Áætlað er að innan 12 – 18 mánaða eða við lok fjárfestingatímabilsins muni félagið renna inn í samstæðu Regins með kaupum þess á öllu hlutafé FM-húsa. Fyrirhugað er að endanlegt hluthafasamkomulag milli hluthafa í FM húsum, sem verði undirritað samhliða kaupsamningi, innihaldi ákvæði um að Reginn eigi kauprétt að hlutum annarra hluthafa í félaginu næstu 18 mánuði eftir undirritun kaupsamnings. Ef til slíkra kaupa kemur mun Reginn jafnframt hafa möguleika á að afhenda hlutafé í Reginn sem greiðslu í slíkum viðskiptum. Slíkt er þó háð samþykki hluthafafundar Regins.

Eftir viðskiptin verða hluthafar FM-húsa, auk Regins og VÍS, Benedikt Rúnar Steingrímsson (18,5%), Magnús Jóhannsson (14,8%) og Særún Garðarsdóttir (3,7%).

Ráðgjafi Regins í viðskiptunum er Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans.

Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson
Forstjóri Regins hf.
S: 512 8900 / 899 6262