Heimar birta uppgjör fyrir tímabilið 1.1. - 30.6.2026, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 27. ágúst 2026.

Jóhann Sigurjónsson viðskiptafræðingur mun taka við sem fjármálastjóri fasteignafélagsins Regins hf. þann 1. mars nk. Jóhann hefur síðan 2010 verið fjármálastjóri Eignarhaldsfélagsins Smáralind ehf. , sem er ein af meginstoðum samstæðu Regins, jafnhliða sem hann hefur starfað á fjármálasviði Regins.
Jóhann þekkir því vel til innviða og starfsemi Regins. Jóhann hefur langa reynslu sem fjármálastjóri í félagi skráðu á verðbréfamarkað en hann var fjármálastjóri og regluvörður HB Granda hf. á árunum 2002 – 2010, þar áður starfaði Jóhann m.a. hjá Íslandsbanka, Glitni, Pharmaco og sem bæjarstjóri í Mosfellsbæ.
Anna Sif Jónsdóttir, núverandi fjármálastjóri Regins, mun hverfa til starfa hjá MP banka. Anna hefur verið fjármálastjóri Regins frá hausti 2009 og því gengt leiðandi og krefjandi hlutverki innan félagsins í gegnum vel heppnaðan uppbyggingar- og skráningaferil Regins. Reginn hf. og Anna Sif hafa komist að samkomulagi um að hún starfi til 1. mars 2013. Stjórn og starfsfólk Regins hf. óskar henni velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.