Heimar munu birta uppgjör fyrir tímabilið 1.1. - 30.6.2026, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 27. ágúst 2026.

Nú standa yfir framkvæmdir í göngugötu Smáralindar þar sem verið er að undirbúa opnun dönsku keðjunnar Joe & the Juice. Staðurinn mun bjóða upp á holla ávaxtadrykki, samlokur og kaffi. Ráðgert er að staðurinn opni á næstunni.
Ný verslun mun einnig opna 22. ágúst í Smáralind en það er franska fylgihlutakeðjan MOA. Þar verður að finna fjölbreytt úrval fylgihluta s.s. skartgripi, töskur, skó og slæður. Þetta er fyrsta verslun MOA á Íslandi en fyrirtækið var stofnað árið 2002 í París og rekur nú um 100 verslanir í 10 löndum.
Upplýsingar og fréttir frá Smáralind má finna á heimasíðu og Facebook síðu Smáralindar.