
Reginn ehf. dótturfélag Landsbankans (NBI hf.) hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í fasteignafélaginu Reginn A3 ehf. Félagið á 7 fasteignir sem eru að meginhluta leigðar undir smásölurekstur á höfuðborgarsvæðinu.
Tilgangur Regins A3 ehf. er kaup, sala og rekstur fasteigna. Fasteignir félagsins eru nær einvörðungu leigðar til aðila er stunda smásölurekstur á höfuðborgarsvæðinu. Félagið er með 24 leigusamninga við 19 leigutaka. Heildarfjöldi útleigðra fermetra er um 7.800. Starfsemi félagsins er í dag að fullu úthýst til Regins ehf.
Seljandi hlutafjárins er Reginn atvinnuhúsnæði ehf. sem er í eigu Regins ehf.
Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum, sem standast hæfismat og sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 350 milljónir króna. Aðilar þurfa jafnframt að gefa til kynna það verð sem þeir eru reiðubúnir að greiða fyrir hlutafé félagsins.
Frestur til að skila inn bindandi tilboðum rennur út klukkan 16:00, mánudaginn 20. desember 2010.
Skilyrði fyrir þátttöku í söluferlinu er að fjárfestar fylli út upplýsingaeyðublað (fjárfestaform) og trúnaðaryfirlýsingu sem er að finna hér að neðan.
Ofangreind fjögur atriði þarf að útlista á upplýsingaeyðublaði (fjárfestaform).
Frá og með 26. nóvember 2010 munu þeir aðilar sem sent hafa umbeðin skjöl og uppfylla fyrrgreind skilyrði að mati Regins ehf., fá aðgang að nauðsynlegum gögnum til að skila inn bindandi tilboði. Rétt er að ítreka að seljandi, Reginn Atvinnuhúsnæði ehf., áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum, breyta söluferlinu og/eða stöðva söluferlið eftir atvikum.
Markmið eiganda er að fá sem hagstæðast verð fyrir hlutaféð sem til sölu er og að salan sé endanleg og óafturkræf.
Fyrirspurnir um söluferlið og þátttöku má senda á netfangið: reginna3@landsbankinn.is.