Til leigu
Sjálfbærni
Kjarnasvæði
IS
EN
Þjónustubeiðnir
Mínar síður

Hafðu samband

Til leigu

Vöktun

Til leigu

Til leigu

Vöktun

Sjálfbærni

Til leigu

Vöktun

Stefnur

Grænir leigusamningar

Bæklingar og skýrslur

Umhverfisvottanir fasteigna

Hafðu samband

Kjarnasvæði

Til leigu

Vöktun

Fjárfestar

Til leigu

Vöktun

Fjárhagsupplýsingar

Uppgjör og skýrslur

Ársskýrsla

Fjárfestatengill

Aðrar upplýsingar

Fjárhagsdagatal

Hluthafafundir

Kauphallartilkynningar

Stærstu hluthafar

Stjórnarhættir

Stjórnarhættir og samþykktir

Stjórn og undirnefndir

Stefnur

Starfsreglur

Tilnefningarnefnd

Fjármögnun

Græn fjármögnun

Skuldabréfaútgáfa

Hlutabréfaútgáfa

Hafðu samband

Um okkur

Til leigu

Vöktun

Fyrirtækið

Um Heima

Stjórnskipulag

Dótturfélög

Stjórn

Eignasafn

Vinnustaðurinn

Starfsfólk

Framkvæmdastjórn

Mannauðsstefna

Störf hjá Heimum

Annað

Fréttasafn

Hvernig getum við aðstoðað?

Fyrir fjölmiðla

Heimar - ný ásýnd

Sögur af viðskiptavinum

Orðheimar

Hafðu samband

IS
EN
Hagasmári 1
201 Kópavogur
Kt. 630109-1080
heimar@heimar.isbokhald@heimar.is+354 512 8900
Facebook Logo Streamline Icon: https://streamlinehq.comLinkedin Logo Streamline Icon: https://streamlinehq.comInstagram Logo Streamline Icon: https://streamlinehq.comYoutube Clip Logo Streamline Icon: https://streamlinehq.com

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn 8. apríl 2014 (1)

11.3.2014
ButtonButtonButton

Stjórn Regins hf. boðar til aðalfundar í félaginu og verður hann haldinn í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi, fundasalnum Rímu, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 8. apríl 2014 og hefst stundvíslega kl. 16:00.

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins sl. starfsár.
  2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar.
  3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á næstliðnu reikningsári.
  4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar.
  5. Kosning félagsstjórnar.
  6. Kosning endurskoðanda.
  7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir næsta kjörtímabil.
  8. Önnur mál.

Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar áður en tvær vikur eru til aðalfundarins. Nánar um heimildir hluthafa til að fá mál tekin til meðferðar á fundinum vísast til samþykkta félagsins sem finna má á heimasíðu þess.

Atkvæðagreiðslur og kosningar  verða einungis  skriflegar á fundinum ef einhver atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Stjórnarkjör skal jafnan vera skriflegt, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal um. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á heimasíðu félagsins, www.reginn.is/fjarfestar.

Um frest til að tilkynna um framboð til stjórnar vísast til  23. gr. samþykkta félagsins.

Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, án tillits til þess hversu margir sækja hann sbr. 14. gr. samþykkta félagsins.

Dagskrá og endanlegar tillögur munu vera hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins í Smáralind, 3. hæð, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, tveimur vikum fyrir aðalfundinn. Upplýsingarnar verða auk þess aðgengilegar á heimasíðu félagsins, www.reginn.is.

Fundargögn verða afhent á fundarstað.

Kópavogur, 11. mars 2014

Stjórn Regins hf.