EN

Sjálfbærni

Stefnur

Grænir leigusamningar

Bæklingar og skýrslur

Umhverfisvottanir fasteigna

Staðfestingar

Hafðu samband

201 Kópavogur

Silf­ursmári 12

Nýtt hágæða skrifstofu-, verslunar- eða þjónusturými á frábærum stað í Silfursmára 12 við hlið Smáralindar.

Við bjóðum til leigu nýtt hágæða skrifstofu-, verslunar- eða þjónusturými við Silfursmára 12. Húsnæðið er staðsett við hlið Smáralindar á besta stað í miðju höfuðborgarsvæðisins og býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir fyrirtæki sem vilja nýta sér sterka staðsetningu, frábæra aðstöðu og sveigjanlegt skipulag.

Helstu kostir
Staðsett í miðju höfuðborgarsvæðisins með fjölbreytta samgöngumáta. Mikil þjónusta í nánasta umhverfi. Nútíma vinnuumhverfi sem býður uppá mikil gæði, góða dagsbirtu, hljóðvist og loftgæði.

Stærð
Um 2.400 m² að viðbættum bílakjallara, geymslum og búningsaðstöðu. Möguleiki er á sérsniði og sveigjanleika eftir þörfum leigutaka.

Skipulag
Silfursmári 12 er á fjórum hæðum og er möguleiki á að vera með verslun og þjónustu á jarðhæð.

Aðstaða
Silfursmári 12 verður Svansvottuð bygging og tekur öll hönnun mið af því. Sambland af timbri, stáli og steypu sem gefur hlýlegt yfirbragð.

Aðgengi
Bílastæði ofan- og neðanjarðar ásamt fjölda bílastæða við Smáralind.

Umhverfi
Mikil þjónusta er í nærumhverfi og má þar nefna t.d Smáralind og heilsugæslu í 100 metra fjarlægð. Í Smáralind eru samankomnir um 100 rekstraraðilar sem bjóða upp á margvíslega verslun, þjónustu, veitingar og afþreyingu fyrir fólk á öllum aldri. Nýtt veitingasvæði mun opna þar fyrir lok árs 2025.

Tilvalinn kostur fyrir fyrirtæki í mismunandi atvinnugreinum sem þurfa gott vinnuumhverfi. Staðsetningin tryggir mjög gott aðgengi og einstakan sýnileika.

Áhugasömum er bent á að hafa samband á leiga@heimar.is fyrir nánari upplýsingar.

Smárinn – Ný miðja höfuðborgarsvæðisins

Smárinn í Kópavogi er miðja höfuðborgarsvæðisins og er svæðið einn af lykilkjörnum félagsins. Í Smáranum hafa Heimar þróað fjölbreytta blöndu húsnæðis fyrir verslanir, veitingastaði, afþreyingu og skrifstofuhúsnæði. Smáralind er stærsta verslunarmiðstöð landsins og er jafnframt hjarta svæðisins. Í Smáralind eru samankomnir um 100 rekstraraðilar og eru árlegir gestir um 4 milljónir.

Silfursmári er nýjasta viðbótin við Smárasvæðið en þar bjóða Heimar til leigu nútímaleg og einstaklega vel staðsett verslunar- og þjónusturými rétt við Smáralind.

  • Mikil þétting í gangi næst Smáralind með íbúðum og atvinnuhúsnæði
  • Umframeftirspurn bæði eftir íbúðar- og atvinnuhúsnæði á svæðinu
  • Stærri fyrirtæki og stofnanir sækja mjög sterkt í svæðið
  • Borgarlína gefur mikil tækifæri til framtíðar
  • Tækifæri í tengingum við alþjóðaflugvöllinn í KEF
  • 3000 fm skrifstofuhæð opnar í Smáralind árið 2024
  • Ein allra glæsilegasta mathöll landsins opnar í Smáralind árið 2025