Græn fjármögnun
Heimar hafa einsett sér að vera leiðandi í mótun og rekstri fasteigna auk þess að stuðla að velferð samfélags, bættum lífsgæðum og umhverfi íbúa. Rekstur og skipulag fasteigna hefur umtalsverð áhrif á umhverfi og lífsgæði íbúa en tugir þúsunda manna dvelja daglega í fasteignum félagsins, ýmist við leik eða störf. Með markvissum aðgerðum í rekstri fasteigna, fjárfestingum, skipulagi, nýbyggingum og með samvinnu við leigutaka geta Heimar átt ríkan þátt í að móta umhverfi fólks þannig að daglegt líf verði betra, ánægjulegra og öruggara.
Með stöðugar úrbætur að leiðarljósi hefur félagið sett sér skýr, mælanleg, markmið um sjálfbærni. Árangur á því sviði er mældur með markvissum hætti og starfsmenn, viðskiptavinir og fjárfestar upplýstir um markmiðin og þann árangur sem næst. Í fjárfestingum og rekstri fasteigna er horft til langs tíma. Það er trú félagsins að áhersla á sjálfbærni dragi úr áhættu í rekstri félagsins og styrki fjárhagslega arðsemi til lengri tíma litið.
Heimar birtu fyrst íslenskra fasteignafélaga umgjörð um græna fjármögnun í mars 2020 en umgjörðin var síðast uppfærð í maí 2026 þar sem m.a. er tekið mið af uppfærðum Green Bond Principles 2025, þróun markaðsvenja á Norðurlöndum og auknum tengingum við EU Taxonomy. Núverandi umgjörð hefur verið staðfest af ISS-Corporate.
Græna umgjörðin byggir á svokölluðum „Green Bond Principles“ viðmiðum útgefnum af ICMA, Alþjóðasamtökum aðila á verðbréfamarkaði og „Green Loan Principles“ viðmiðum útgefnum af Loan Market Association (LMA).