201 Kópavogur

Smár­inn | Kópa­vog­ur

Ný miðja höfuðborgarsvæðisins

Smárinn í Kópavogi er miðja höfuðborgarsvæðisins og er svæðið einn af lykilkjörnum félagsins. Í Smáranum hafa Heimar þróað fjölbreytta blöndu húsnæðis fyrir verslanir, veitingastaði, afþreyingu og skrifstofuhúsnæði. Smáralind er stærsta verslunarmiðstöð landsins og er jafnframt hjarta svæðisins. Í Smáralind eru samankomnir um 100 rekstraraðilar og eru árlegir gestir um 4 milljónir.

Silfursmári er nýjasta viðbótin við Smárasvæðið en þar bjóða Heimar til leigu nútímaleg og einstaklega vel staðsett verslunar- og þjónusturými rétt við Smáralind.

  • Mikil þétting í gangi næst Smáralind með íbúðum og atvinnuhúsnæði
  • Umframeftirspurn bæði eftir íbúðar- og atvinnuhúsnæði á svæðinu
  • Stærri fyrirtæki og stofnanir sækja mjög sterkt í svæðið
  • Borgarlína gefur mikil tækifæri til framtíðar
  • Tækifæri í tengingum við alþjóðaflugvöllinn í KEF
  • 3000 fm skrifstofuhæð opnar í Smáralind árið 2024
  • Ein allra glæsilegasta mathöll landsins opnar í Smáralind árið 2025