102 Reykjavík
Gróska - skrifstofukjarni
Gróska er samfélag nýsköpunar og ein stærsta og metnaðarfyllsta skrifstofubygging landsins. Hugmyndafræði Grósku byggist á að skapa umhverfi sem er hannað til að mæta öllum daglegum þörfum leigjenda undir einu þaki. Öflug fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum má finna í Grósku en þar er í boði fjölbreytt og sveigjanleg þjónusta. Meðal þess sem er í boði er leiga á vinnurými fyrir einstaklinga og fyrirtæki ásamt ráðstefnu- og fundaraðstöðu.
Helstu kostir Grósku
- Sveigjanlegar lausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki, sniðin að mismunandi þörfum.
- Hágæða skrifstofurými þar sem lögð er áhersla á loftgæði og hljóðvist.
- Gott aðgengi að fundar- og ráðstefnurýmum, bæði fyrir daglega fundi og stærri viðburði.
- Næg bílastæði.
- Líkamsrækt og veitingastaður innanhúss, sem styður við daglegar þarfir og vellíðan.
- Öflugt og lifandi samfélag fólks og fyrirtækja af ólíkum stærðum og gerðum.
- Sterkt nýsköpunarumhverfi þar sem hugmyndir, samstarf og þróun fá að blómstra.