EN

Sjálfbærni

Stefnur

Grænir leigusamningar

Bæklingar og skýrslur

Umhverfisvottanir fasteigna

Staðfestingar

Hafðu samband

101 Reykjavík

Geirs­gata 4

Verslunar- og þjónusturými á frábærum stað við Geirsgötu á Hafnartorgi

Glæsilegt nútíma verslunar- og þjónusturými staðsett á kjarnasvæði í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið Hafnartorgi.

Helstu kostir:

Stærð: Um 195m².

Skipulag: Inngangur beggja megin við húsið. Staðsetningin tryggir gott aðgengi og sýnileika.

Aðgengi: Undir svæðinu alla leið að Hörpu er stærsti bílakjallari landsins sem fólk getur keyrt inn um á 3 mismunandi stöðum og gengið upp á mörgum stöðum, m.a. með lyftum og rúllustigum beint upp á göngugöturnar og verslunarsvæðin.

Umhverfi: Byggingin er hluti af Hafnartorgssvæðinu en það hefur verið mikil uppbygging á svæðinu á síðustu árum. Hafnartorgssvæðið er nútímalegt borgarhverfi sem nær alveg frá Lækjartorgi og að Hörpu. Á svæðinu er blandað saman íbúðarhúsnæði, skrifstofum, hótelum, verslununum og þjónustu ásamt menningartengdri starfsemi. 

Áhugasömum er bent á að hafa samband á leiga@heimar.is fyrir nánari upplýsingar.