Tilkynning um undirritun á kaupsamningi við fasteignafélag
Undirritaður var kaupsamningur milli Regins hf. og Almenna byggingafélagsins sem á hluta Fellsmúla 26, Reykjavík.
Eftir lokun markaðar 14. febrúar s.l. sendi Reginn hf., frá sér tilkynningu um samkomulag um leigu og samþykki á tilboðum um kaup á fjórum fasteignafélögum með fyrirvörum.
Öllum fyrirvörum hefur verið eytt hvað varðar kaup á fasteignafélaginu, Almenna byggingafélagið ehf. Undirritaður var kaupsamningur milli Regins hf. og Almenna byggingafélagsins í dag, 23 apríl. Almenna byggingafélagið á hluta Fellsmúla 26, í Reykjavík. Stærð eignarhlutar félagsins er 1.546 m2.
Með þessum kaupum hefur verið gengið frá kaupum á 3 af 4 fasteignafélögum í tengslum við ofangreind viðskipti. Ekki hefur verið gengið frá kaupsamningi við fasteignafélagið VIST ehf. Verið er að vinna áfram í því máli og verður sú niðurstaða tilkynnt þegar hún liggur fyrir.
Kaup þessi fylgja fjárfestingastefnu Regins sem felur í sér að auka hlut félagsins í skrifstofuhúsnæði.