Snjallsorp í Smáralind

17.10.2022
Innleiðing er nú hafin að nýju og snjöllu flokkunarkerfi í Smáralind sem stuðlar að betri og hagkvæmari sorpflokkun. Kerfið, sem kallað er Snjallsorp þjónar fyrirtækjum í Smáralind.

Innleiðing er nú hafin að nýju og snjöllu flokkunarkerfi í Smáralind sem stuðlar að betri og hagkvæmari sorpflokkun. Kerfið, sem kallað er Snjallsorp og þjónar fyrirtækjum í Smáralind, virkar þannig að notendur skrá sig inn í kerfið þegar losa á sorp og sérstakur búnaður vigtar sorp hvers og eins. Með því er skráð niður á notanda með rafrænum hætti magn og flokk þess sorps sem er losað og hver og einn greiðir aðeins fyrir sína losun. Notendur fá þannig ítarlegar upplýsingar um sína sorplosun og flokkun.

Þetta gerir notendum meðal annars kleift að fylgjast með sorpflokkunarhlutfalli sínu og magni og bera saman árangur á milli mánaða og ára. Þannig verður hver og einn notandi ábyrgur fyrir sinni sorpflokkun sem eykur hagkvæmni og stuðlar að fjárhagslegum ávinningi af flokkuninni ásamt því að stuðla að betri sorpflokkun í Smáralind.

Innleiðing Snjallsorps er liður í grænni vegferð Regins og styður við BREEAM In-Use vottun Smáralindar.