Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Regins hf. á FM húsum ehf.
19.7.2017

Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna samrunans.
Þann 30. maí sl. var undirritaður kaupsamningur milli Regins hf. og FM húsa ehf. um kaup á 55% hlutafé í FM – húsum ehf. Kaupsamningurinn innihélt m.a. fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Samkeppniseftirlitið hefur nú birt niðurstöðu sína, en samkvæmt henni telur Samkeppniseftirlitið að kaup Regins hf. á ofangreindu félagi feli í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna samrunans.
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson
Forstjóri Regins hf.
S: 512 8900 / 899 6262