Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

19.4.2024

Við erum afar stolt af samstarfi okkar með HönnunarMars en Reginn og Hafnartorg eru stoltir styrktaraðilar hátíðarinnar. HönnunarMars fer fram dagana 24. - 28. apríl og hefur hún farið fram árlega síðan 2009.

Reginn hefur verið bakhjarl hátíðarinnar síðan 2020 og styrkt framkvæmd hennar með ýmsum hætti.

Hafnartorg er aðal sýningarkjarni hátíðarinnar og er þungamiðja fyrir gesti sem gefst þar tækifæri til að upplifa framúrskarandi hönnun í miðborgarhverfi Reykjavíkur þar sem fjölmargar sýningar hátíðarinnar verða staðsettar.

Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um sýningarnar á Hafnartorgi í ár á vef Hafnartorgs.