Reginn hf. semur um endurfjármögnun Smáralindar

19.11.2012

Reginn hefur lokið öðrum áfanga í endurfjármögnun félagsins. Í framhaldi af viðræðum og öflun tilboða í fjármögnun þá hefur félagið tryggt endurfjármögnun Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf.

smaralind

Reginn hefur lokið öðrum áfanga  í endurfjármögnun félagsins. Í framhaldi af viðræðum og öflun tilboða í fjármögnun þá hefur félagið  tryggt endurfjármögnun Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf.  að fjárhæð 9 milljörðum króna.  Fjármögnunin er verðtryggð til  30 ára og ber 3,95% fasta vexti.  Heimilt er að greiða upp lánið eftir 5 ár. Fjármögnunin er með jöfnum afborgun og greiðsluferlið er 30 ár. Um er að ræða eignatryggða fjármögnun og er lánveitandi REG 2 fagfjárfestasjóður í rekstri Stefnis hf. Þegar hefur verið samið um helstu skilmála með fyrirvara um áreiðanleikakönnun.  Áætlaður ávinningur félagsins vegna lægri vaxtakjara er um 100 m.kr. á ársgrundvelli.

Hér má lesa tilkynninguna í heild sinni.