Reginn hf. - Hlutafjáraukning (1)

Stjórn Regins ákvað á fundi sínum þann 22. mars 2016 að nýta heimild í 4. gr. samþykkta félagsins sem samþykkt var á hluthafafundi Regins fyrr þann sama dag og hækka hlutafé í Regin um 126.600.000 krónur að nafnvirði á genginu 19,0 krónur á hlut. Lögbundinn forgangsréttur hluthafa gildir ekki um hið nýja hlutafé. Hlutafjáraukningunni verður ráðstafað sem greiðslu fyrir hlutafé í fasteignafélögunum Ósvör ehf. og CFV 1 ehf. í samræmi við kaupsamning dags. 30. desember 2015.
Hlutafé í Regin fyrir hlutafjáraukninguna er 1.428.700.000 krónur að nafnvirði og verður að henni lokinni 1.555.300.000 krónur að nafnvirði. Reginn á ekki eigin hluti. Hinir nýju hlutir veita réttindi í Regin frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar hjá Fyrirtækjaskrá. Sölubann gildir um hina nýju hluti þannig að 30% hlutanna verða seljanlegir við afhendingu, 60% eftir 6 mánuði og 100% eftir 9 mánuði frá afhendingu.
Hinir nýju hlutir verða afhentir eigendum fasteignafélaganna Ósvör ehf. og CFV 1 ehf. sem eru nokkrir. Af þessum aðilum er enginn með stærri hlut en 2% í Regin að undanskyldum Sigurði Sigurgeirssyni fagfjárfesti. Í gegnum eignarhaldsfélag sitt, Mjölnisholt ehf. verður Sigurður sjötti stærsti hluthafinn í Regin.
Eftirfarandi er listi yfir 10 stærstu hluthafa í Regin eftir hlutafjáraukninguna:
Nr. | Nafn | Hlutir | % |
1 | Lífeyrissjóður verslunarmanna | 208.388.362 | 13,4% |
2 | Stefnir - ÍS 15 | 132.985.661 | 8,6% |
3 | Sigla ehf. | 122.265.000 | 7,9% |
4 | Gildi - lífeyrissjóður | 114.180.738 | 7,3% |
5 | Stapi lífeyrissjóður | 88.719.956 | 5,7% |
6 | Mjölnisholt ehf. | 58.157.363 | 3,7% |
7 | Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda | 56.337.947 | 3,6% |
8 | Sameinaði lífeyrissjóðurinn | 51.643.860 | 3,3% |
9 | Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild | 44.800.000 | 2,9% |
10 | Stefnir – Samval | 43.303.836 | 2,8% |
10 stærstu hluthafar í Regin samtals | 920.782.723 | 59,2% | |
Aðrir hluthafar | 634.517.277 | 41,3% | |
Samtals | 1.555.300.000 | 100,0% |
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262