Reginn er fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum 2021-22

29.8.2022
Regin var á dögunum veitt viðurkenning vegna góðra stjórnarhátta og nafnbótin „Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum“

Regin var á dögunum veitt viðurkenning vegna góðra stjórnarhátta og nafnbótin „Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum“. Dagbjört Erla Einarsdóttir, yfirlögfræðingur félagsins tók á móti viðurkenningunni fyrir hönd Regins.

Viðurkenningin byggir á úttekt á stjórnarháttum félagsins og var Reginn eitt af 16 fyrirtækjum sem hlutu viðurkenninguna að þessu sinni. Úttektin tekur mið af leiðbeiningum um góða stjórnarhætti sem eru gefnar út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi. Stjórnvísi er umsjónaraðili viðurkenningarferlisins.

Við erum afar stolt af þessari mikilvægu viðurkenningu.