Reginn efst fasteignafélaga

27.2.2023
Nýverið birti Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) UFS mat Reitunar á innlendu eignasafni lífeyrissjóðsins. Í samantekt þeirra kemur fram að Reginn er efst fasteignafélaga og hækkar um tvö stig frá fyrra ári.

Nýverið birti Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) UFS mat Reitunar á innlendu eignasafni lífeyrissjóðsins miðað við eignastöðu LSR í lok júní 2022 og má sjá það hér. LSR er stærsti hluthafi Regins í dag.

Reitun framkvæmir UFS áhættumöt fyrir innlendan markað þar sem sjálfbærnistaða rekstraraðila er metin. Reitun hefur framkvæmt UFS möt á öllum skráðum útgefendum hluta– og skuldabréfa í íslenskri Kauphöll síðan árið 2020 þar sem helstu viðskiptavinir eru fagfjárfestar.

Í samantekt LSR kemur fram að Reginn er í flokki B1 (Gott) þar sem neðri mörk eru 80 og efri mörk eru 85, en einkunn Regins eftir mat Reitunar er 82 stig. Það gerir það að verkum að Reginn er efst þeirra fasteignafélaga sem eru með skráð hlutabréf í Kauphöll Íslands. Matið var framkvæmt sl. haust og hækkaði Reginn um 2 stig frá fyrra ári. Næsti flokkur er A3 en þar eru bankar og opinberar stofnanir.

Niðurstaða þessi styrkir trú félagsins að sjálfbærniáherslur félagsins séu lykilþáttur hjá Regin. Það er mat félagsins að fjárfestar séu farnir að líta til félaga sem innleiði sjálfbærni í sem flesta þætti starfsemi sinnar. Í fjárfestingarstefnu Regins kemur meðal annars fram að við val á fjárfestingarkostum sé litið til sjálfbærnistefnu. Það er trú Regins að áhersla á sjálfbærni dragi úr áhættu í rekstri og styrki arðsemi til lengri tíma litið.

Frekari upplýsingar um sjálfbærnigreiningar og UFS möt hjá Reitun má sjá hér.