Optical Studio opnar á Hafnartorgi

2.10.2019

Gleraugnaverslunin Optical Studio hefur opnað glæsilega verslun á Hafnartorgi sem skartar öllum þekktustu tískumerkjum heims í sólgleraugum og gleraugnaumgjörðum. Þar má finna vörumerki eins og GUCCI, CARTIER, BOTTEGA VENETA, BURBERRY og RAY BAN. Í versluninni er hægt að sækja alla þá þjónustu sem gerist best á sviði sjónmælinga. Við bjóðum Optical Studio velkomin á Hafnartorg og óskum þeim til hamingju með glæsilega verslun.