Nýtt fimleikahús vígt

2.11.2015

Húsið sem er  um 2.300 fermetrar hefur verið í byggingu frá 2014 og er nú orðið fullbúið og tilbúið til notkunar. Öll aðstaða er eins og best verður á kosið sem án efa mun styrkja fimleikadeild Fjölnis sem verður með starfsemi í húsinu.

Húsið sem er  um 2.300 fermetrar hefur verið í byggingu frá 2014 og er nú orðið fullbúið og tilbúið til notkunar. Öll aðstaða er eins og best verður á kosið sem án efa mun styrkja fimleikadeild Fjölnis sem verður með starfsemi í húsinu. Borgarstjóri Reykjavíkur, Dagur B. Eggertsson, ásamt Helga S. Gunnarssyni forstjóra fasteignafélagsins Regins hf. vígðu húsið við hátíðlega athöfn.

Reginn fasteignafélag er eigandi byggingarinnar og Reykjavíkurborg leigutaki.

Egilshöll er stærsta íþrótta- og afþreygingarmiðstöð Íslands og er heildarstærð byggingarinnar um 34 þúsund fermetrar.

Fjölbreytt starfsemi er í húsinu;  SAMbíóin, Keiluhöllin, veitingastaðurinn Shake & Pizza sem opnar innan skamms, skautafélagið Björninn, World Class, Sólbaðsstofan Sælan, Skotfélag Reykjavíkur, íþróttafélagið Fjölnir og dagvistun á vegum Reykjavíkurborgar.