Mýrargata 26: Sala, þróun, uppbygging

14.2.2012

Reginn ehf. auglýsir eftir áhugasömum aðilum sem vilja kaupa eða taka þátt í að þróa og byggja upp verkefnið á Mýrargötu 26.

Markmið

Ætlun Regins er að hámarka verðmæti eignarinnar og ráðstafa henni sem fyrst, helst í beinni sölu. Ef ekki fæst viðunandi tilboð í eignina er félagið tilbúið að fara í frekari þróun á verkefninu í samstarfi við trausta aðila með það fyrir augum að ljúka við uppbyggingu og selja. Mögulegir samstarfsaðilar verða valdir í opnu ferli sem felst í samkeppni um álitlegustu viðskiptahugmyndirnar. Í kjölfar hennar fara svo fram samkeppnisviðræður um framhald verkefnisins.

Upphaflegt verkefni

Verkefnið var upphaflega þróað og byggt upp sem 9.400 m² fjölbýlishús með samtals 61 íbúð, og 91 stæði í bílageymslu á tveimur hæðum. Nú er búið að steypa upp kjallara, 1. og 2. hæð, auk hluta 3. hæðar. Það er mat Regins að endurskoða þurfi verkefnið frá grunni og er félagið tilbúið að skoða nýjar og ferskar hugmyndir í þá veru.

Val á samstarfsaðila

Kynningargögn er hægt að nálgast frá og með þriðjudeginum 8. febrúar 2011 á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar, www.vso. is.

Umbeðnum gögnum skal skilað til VSÓ Ráðgjafar, Borgartúni 20, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 12:00 fimmtudaginn 24. febrúar 2011.

Bein kaup

Þeim aðilum sem hafa hug á að gera tilboð í eignina miðað við bein kaup, er bent sérstaklega á eftirfarandi fasteignasala sem sjá um sölu á fasteignum Regins ehf.

  • Atvinnueignir 
  • Eignamiðlun 
  • Fasteignamarkaðurinn 
  • Miklaborg

Blaðaauglýsing