Lánsfjármögnun Egilshallar lokið

17.10.2012

Í tilkynningu Regins hf. þann 26. september sl. kom fram að fyrsta áfanga í endurfjármögnun félagsins væri lokið með fyrirvara um áreiðanleikakönnun.

egilshöllÍ tilkynningu Regins hf. þann 26. september sl. kom fram að fyrsta áfanga í endurfjármögnun félagsins væri lokið með fyrirvara um áreiðanleikakönnun. Sú áreiðanleikakönnun hefur nú farið fram án athugasemda og er umræddri lánsfjármögnun því lokið. Fjármögnunin er verðtryggð til 10 ára, með 40 ára endurgreiðsluferli og ber 3,85% fasta vexti. Um er að ræða eignatryggða fjármögnun sem verður skráð í Kauphöll Íslands, Nasdaq OMX Iceland. Lánveitandi er REG 1 fagfjárfestasjóður í rekstri Stefnis hf.

Reginn hf. sem öflugt skráð fasteignafélag ásamt tryggum leigusamningum við leigutaka á borð við Reykjavíkurborg er grundvöllur þeirra hagstæðu kjara sem félagið hefur nú tryggt sér

Egilshöllin er ein glæsilegasta miðstöð íþrótta og afþreyingar á Íslandi. Þar má m.a. finna eitt vinsælasta kvikmyndahús landsins, keiluhöll með tilheyrandi veitingastöðum, innanhúss knattspyrnuvöll, fullbúið skautasvell, heilsurækt og skotæfingasal. Fyrir utan húsið eru fjölmargir gervigrasvellir og allt um kring frábær svæði til útivistar. Egilshöll er í heildina 30.696 m2.

Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast rekstur á atvinnuhúsnæði. Fasteignasafn Regins telur 31 fasteignir og er heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins um 158 þúsund fermetrar.

Stefnir hf. er stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins með um 340 milljarða króna í virkri stýringu. Stefnir hefur meðal annars sérhæft sig á sviði eignatryggðrar fjármögnunar og unnið fjölmörg verkefni á því sviði.