Landsvirkjun flytur í Höfðatorgsturninn

17.11.2023

Mikill áhugi hefur verið meðal fyrirtækja að vera með aðsetur í Höfðatorgsturninum í Katrínartúni 2. Í maí sl. var ritað undir grænan leigusamning við Landsvirkjun fyrir um 4.500 m2 í húsinu og mun starfsemi þeirra dreifast á fimm hæðir. Að stórum hluta til var Reiknistofa bankanna áður í þessum rýmum og var gengið frá samningi við Landsvirkjun áður en Reiknistofan hafði flutt út. Undanfarnar vikur hefur Landsvirkjun verið að koma sér fyrir og nú þegar tekið nokkur rými í notkun. Um hágæða skrifstofurými er að ræða og útsýnið einstakt, en starfsemi Landsvirkjunnar er m.a. á 17. hæð. Með tilkomu Landsvirkjunnar má segja að húsið sé í raun uppselt þar sem öll rými eru að fullu útleigð.
 
Undanfarin misseri hefur verið lögð mikil áhersla á uppfærslu gæða í húsinu, m.a. með uppfærslu á sameign, innleiðingu snjallsorps, bættri hjólageymslu, opnun á nýrri og glæsilegri veitingaaðstöðu o.s.frv. Við bjóðum Landsvirkjun hjartanlega velkomin í húsið, en meðal fyrirtækja og stofnana sem nú þegar eru í Höfðatorgsturninum má nefna Kviku banka, Embætti landlæknis, Nox Medical ásamt fjölda annara.