Framboð til stjórnar á aðalfundi Regins hf. þann 8. apríl nk.

4.4.2014

Framboðsfrestur til stjórnar Regins hf. rann út þann 3. apríl. Fimm aðilar bjóða sig fram til stjórnar og tveir aðilar til varastjórnar.

Aðalmenn:

Benedikt K. Kristjánsson  -   sölu– og þjónustufulltrúi.

Bryndís Hrafnkelsdóttir  -   viðskiptafræðingur, Cand. Oecon.

Jón Steindór Valdimarsson  -  lögfræðingur.

Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir  -  lögmaður hdl.  og MBA.

Tómas Kristjánsson  -  viðskiptafræðingur,  Cand. Oecon og MBA.

 

Til varastjórnar bjóða sig fram:

Finnur Reyr Stefánsson  -  hagfræðingur og MBA.

Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir  -  hagfræðingur.

 

Tveir hluthafar ráða yfir 10% af heildarhlutafé eða atkvæðavægi í félaginu, það eru Lífeyrissjóður verslunarmanna og Stefnir hf.

Samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtökum Atvinnulífsins telst Benedikt K. Kristjánsson, einn frambjóðenda,  háður stórum hluthafa í félaginu sökum setu hans í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna.  Enginn frambjóðandi til stjórnar telst háður félaginu í skilningi sömu leiðbeininga / reglna.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur má finna í viðhengi.

Reginn hf. - frambjóðendur til stjórnar