Einholt - Þverholt – Þróun - Uppbygging - Sala

14.2.2012

Reginn ehf. auglýsir eftir áhugsömum aðilum sem vilja kaupa, eða taka þátt í að þróa og byggja upp byggingareitinn milli Einholts og Þverholts í Reykjavík.

Reginn ehf. auglýsir eftir áhugsömum aðilum sem vilja kaupa, eða taka þátt í að þróa og byggja upp byggingareitinn milli Einholts og Þverholts í Reykjavík.

Markmið

Reginn ehf. hefur það að markmiði að hámarka verðmæti verkefnisins og að það skili sem fyrst arði til félagsins, hvort heldur sem er með beinni sölu eða áframhaldandi þróun í samstarfi við trausta og áhugasama aðila. Samstarfsaðilar verða valdir í opnu ferli sem felst í samkeppni um viðskiptahugmynd sem uppfyllir markmið Regins ehf.

Upphaflegt verkefni

Byggingareitur sá sem um ræðir er alls tæpir 10.000 m² að stærð. Árið 2007 hófust framkvæmdir við námsmannaíbúðir á hluta reitsins (um 7.100 m²) og er búið að rífa öll hús sem stóðu á þeim hluta og grafa og sprengja grunn að miklu leyti. Hinn hluti reitsins er ætlaður fyrir almennar íbúðir og þar eru engar framkvæmdir hafnar.
Vegna formgalla hefur deiliskipulag þessa reits verið fellt úr gildi með úrskurði Úrskurðarnefndar skipulagsmála. Það er mat Regins ehf. að endurskoða þurfi upphafleg áform og er félagið tilbúið til samvinnu við áhugasama aðila um nýjar hugmyndir.

Upplýsingar

Kynningargögn er hægt að nálgast frá og með miðvikudeginum 5. október 2011 á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar, www.vso.is. Umbeðnum gögnum skal skilað til VSÓ Ráðgjafar, Borgartúni 20, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 25. október 2011.