Dómur fallinn í kröfu þrb. Norðurturnsins ehf. gegn Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf. í Hæstarétti.

30.5.2013

Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. sýknað af kröfum.

Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. hefur verið sýknað af kröfum þrotabús Norðurturnsins með dómi Hæstaréttar frá því í dag 30.5.2013. Eftir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur síðla árs 2012 var niðurstöðunni áfrýjað af þrotabúi Norðurturnsins. Niðurstaða dagsins í dag er í samræmi við fyrri niðurstöðu.

Skiptastjóri þrotabús Norðurturnsins ehf., fyrrum systurfélags Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. stefndi Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf. til greiðslu kröfu að fjárhæð 1.300.000.000 kr. með dráttarvöxtum frá og með 30. mars 2009 til greiðsludags, byggt á því að Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. hafi undirgengist skuldbindingu um að leggja til þá fjármuni til byggingar fasteignar við Smáralind, svokallaðs Norðurturns.

Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. hafnaði þeirri kröfu um að félaginu bæri að greiða hluta byggingakostnaðar á þeirri forsendu að engar samþykktir finnist í gögnum félagsins fyrir þátttöku í byggingakostnaðinum, með dómnum er það viðhorf staðfest.

Þess ber að geta að í tengslum við skráningu Regins hf. á markað sl. vor þá gaf Landsbankinn hf. út skaðleysisyfirlýsingu til handa Eignarhaldsfélagi Smáralindar ehf., dótturfélagi Regins hf., vegna dómsmálsins, þannig að niðurstaða þess hefði engin áhrif á félagið, þar sem Landsbankinn hf. myndi taka yfir greiðsluskyldu gagnvart stefnanda ef til hennar kæmi.