Borgarhöfði
Þróunarsvæði á Ártúnshöfða. Borgarhöfði verður sjálfbær borgarkjarni með blómlegu mannlífi. Stutt verður í þjónustu og afþreyingu fyrir íbúa og þá sem starfa á svæðinu.
Ný hágæða skrifstofubygging á frábærum stað við Dvergshöfða 4
Við bjóðum til leigu nýja og stórglæsilega skrifstofubyggingu við Dvergshöfða 4 sem er nú í byggingu. Rýmið er vel staðsett og býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir fyrirtæki sem vilja nýta sér sterka staðsetningu til framtíðar í hverfi sem er í hraðri uppbyggingu. Gert er ráð fyrir afhendingu á næstu 18-24 mánuðum.
Helstu kostir: Frábært staðsetning í nýjum kjarna, Borgarhöfða. Fjöldi bílastæða ofan- og neðanjarðar. Mikil þjónusta í nánasta umhverfi. Nútíma vinnuumhverfi sem býður uppá mikil gæði, góða dagsbirtu, hljóðvist og loftgæði.
Stærð: Um 10.500 m² umhverfisvottað hús á 7. hæðum.
Skipulag: Ekki er komin endanleg hönnun á innra skipulag og því möguleiki á þáttöku leigutaka í hönnun.
Aðstaða: Áhersla lögð á sjálfbærni og snjallausnir.
Aðgengi: Fjöldi bílastæði ofanjarðar og neðanjarðar. Fyrsti áfangi Borgarlínunnar í innan við 5 mínútna göngufjarlægðar.
Umhverfi: Mikil þjónusta á svæðinu sem mun aukast enn frekar m.a mathöll og heilsugæsla. Stutt í almenningsamgöngur og stofnbrautir.
Þetta rými er tilvalið fyrir fyrirtæki í mismunandi atvinnugreinum sem þurfa gott vinnuumhverfi. Staðsetningin tryggir gott aðgengi og mikin sýnileika á frábærum stað.
Áhugasömum er bent á að hafa samband á leiga@heimar.is fyrir nánari upplýsingar.