101 Reykjavík

Hafn­ar­stræti 18 - jarð­hæð og kjall­ari

Heimar kynna verslunarrými í húsi með mikla sögu, bygging upphaflega frá árinu 1796 en var endurbyggð á árunum 2018 til 2023. Innan rýmis má finna fallegan hlaðinn múrsteinsvegg, glugga og hurðar sem gera rýmið einstakt á sinn hátt. 

Byggingin er hluti af Hafnartorgssvæðinu en það hefur verið mikil uppbygging á svæðinu á síðustu árum. Hafnartorgssvæðið er nútímalegt borgarhverfi sem nær alveg frá Lækjartorgi og að Hörpu. Á svæðinu er blandað saman íbúðarhúsnæði, skrifstofum, hótelum, verslununum og þjónustu ásamt menningartengdri starfsemi.

Undir svæðinu alla leið að Hörpu er stærsti bílakjallari landsins sem fólk getur keyrt inn um á 3 mismunandi stöðum og gengið upp á mörgum stöðum, m.a. með lyftum og rúllustigum beint upp á göngugöturnar og verslunarsvæðin.

Áhugasömum er bent á að hafa samband með því að senda tölvupóst á leiga@heimar.is.