EN

Sjálfbærni

Stefnur

Grænir leigusamningar

Bæklingar og skýrslur

Umhverfisvottanir fasteigna

Staðfestingar

Hafðu samband

101 Reykjavík

Hafn­artorg – versl­un­ar og þjón­ustu­rými Geirs­götu 2

Heimar bjóða til leigu einstakt verslunar- og þjónusturými á frábærum stað í miðborg Reykjavíkur.

Um er að ræða glæsilegt og nútímalegt rými á áberandi stað þar sem mikil uppbygging og mannlíf hefur myndast á síðustu árum. Rýmið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og hentar sérstaklega vel fyrir þjónustu, verslun, afþreyingu eða aðra upplifunarstarfsemi sem vill njóta sýnileika og sterkrar staðsetningar í hjarta borgarinnar.

Stærð: Frá 502–700 m².

Skipulag: Rýmið hefur nokkra innganga sitt hvoru megin við húsið sem tryggir gott flæði, aðgengi og mikinn sýnileika gagnvart bæði gangandi vegfarendum og gestum svæðisins.

Aðgengi: Undir svæðinu, alla leið að Hörpu, er stærsti bílakjallari landsins með innkeyrslu frá þremur mismunandi stöðum. Þaðan er gott aðgengi upp á verslunar- og þjónustusvæðin með lyftum og rúllustigum sem tengja svæðið beint við göngugötur og mannlíf miðborgarinnar.

Umhverfi: Hafnartorg hefur á skömmum tíma þróast í eitt mest lifandi og nútímalega borgarsvæði landsins. Svæðið nær frá Lækjartorgi að Hörpu og sameinar íbúðir, skrifstofur, hótel, verslanir, veitingastaði og fjölbreytta þjónustu í öflugu borgarumhverfi sem dregur til sín bæði ferðamenn og heimafólk allt árið um kring.

Spennandi tækifæri fyrir fyrirtæki sem vilja staðsetja starfsemi sína á öflugu vaxtarsvæði með mikla framtíðarmöguleika.

Áhugasömum er bent á að hafa samband á leiga@heimar.is fyrir nánari upplýsingar.