EN

Sjálfbærni

Stefnur

Grænir leigusamningar

Bæklingar og skýrslur

Umhverfisvottanir fasteigna

Staðfestingar

Hafðu samband

102 Reykjavík

Gróska - skrif­stofu­rými

Heimar bjóða til leigu 500 m2 hágæða skrifstofurými í Grósku – samfélagi nýsköpunar. Um er að ræða eina metnaðarfyllstu skrifstofubyggingu landsins þar sem í boði eru hágæða skrifstofurými þar sem mikið hefur verið lagt upp úr loftgæðum og góðri hljóðvist.
Í Grósku er lögð áhersla á að skapa umhverfi sem er hannað til að mæta öllum daglegum þörfum leigjenda undir einu þaki. Öflug fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum má finna í Grósku en þar er í boði fjölbreytt og sveigjanleg þjónusta.
  • Gott aðgengi að fundar- og ráðstefnurýmum, bæði fyrir daglega fundi og stærri viðburði.
  • Næg bílastæði.
  • Líkamsrækt og veitingastaður innanhúss, sem styður við daglegar þarfir og vellíðan.
  • Öflugt og lifandi samfélag fólks og fyrirtækja af ólíkum stærðum og gerðum.
  • Sterkt nýsköpunarumhverfi þar sem hugmyndir, samstarf og þróun fá að blómstra.

Hátíðarsalur Grósku er tilvalinn fyrir ráðstefnur, fyrirlestra og fjölbreytta viðburði. Fyrir utan salinn er opið rými sem hentar vel fyrir móttöku og veitingar við fallegan gróðurvegg Grósku.

Áhugasömum er beint á að hafa samband við leiga@heimar.is.